Við fórum þrír í þessa ævintýraferð með leiðsögumanni inn í frumskógonn í Petén, Gvatemala til að skoða hinar fornu Mayarústir, El Mirador, sem eiga að hafa verið þær hæstu í sögu Mayanna og eru líka merkilegar fyrir þær sakir að vera frá forsögulegum tíma.
Múlasnarnir gerðir klárir
Í Carmelita, "síðasta bænum í skóginum" voru múlasnarnir þrír gerðir klárir af Adonis, leiðsögumanni okkar og Julio, sem sá um múlasnana.
Lagt í hann
Þá var lagt í hann. Fyrstu klukkutímana gengum við á holóttum stíg, sem var í raun uppþornað drullusvað af leir og dýraskít.
Búðirnar í El Tintal
Þarna gistum við fyrstu nóttina í frumskóginum. Eins og alltaf mátti maður passa sig á blessuðum blóðmaurunum. Við sváfum líka undir flugnaneti, en lærðum það líka að það er eins gott að tryggja að það sé ekkert á sveimi undir netinu áður en maður fer að sofa.
Fyrstu rústirnar
Í El Tintal löbbuðum við upp á fyrsta merka hólinn (lesist "fornar þrælmerkilegar Mayarústir") og horfðum þar á sólarlagið. Áttuðum okkur svo á því að best er að vera með ljós meðferðis, því skógarþykknið gerir rökkur að myrkri. Ég var að sjálfsögðu með ljós!
El Muerte
Rústirnar El Muerte, sem eru í um 3 km fjarlægð frá El Mirador svæðinu, eru gömul fangelsi Maya, sem hafa verið rannsökuð og gerð upp af fornleifafræðingum. Hérna skoðuðum við okkur um.
Fangaðir
Við kíktum aðeins inn fyrir fangelsisdyrnar og upplifðum fangahroll.
Upp á El Tigre
Um kvöldið eftir smá afslöppun og fötubað var farið upp á El Tigre, sem var hæsta hofið á svæðinu og hæsta Mayahof sem þekkt er (18 hæða). Eins gott að hafa kaðlana!
Sólarlag af El Tigre
Ekkert nema náttúruhljóð og sólin að hverfa niður fyrir sjóndeildarhring. Suðið í býflugunum var kannski ekki það skemmtilegast sem við heyrðum samt!
Hús stjörnufræðingsins
Var ekki hægt annað en að kíkja við, með einn ameríkanann hálfskakkan og neitandi sér um hjálp gerði minninguna bara eftirminnilegri. Þarna má sjá uppreista hramma tígrisdýrisins.
Skriðdýr
Þetta var ekki EINA köngulóin sem ég hitti fyrir.