Svona fór um sjóferð þá
Brakið. Eins og alþjóð veit, lenti Svalan í stormi mitt á milli Færeyja og Íslands og áhöfnin var hífð heil á húfi upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Fiskibátur fann hana heila á reki, en því miður skemmdist hún í drættinum og kom marandi í hálfu kafi til Þorlákshafnar. Hér er hún eftir að búið er að dæla úr henni sjó.



