Heim

17. október á því herrans ári 2006

Todo bien

Estoy vivo, haciendo mi trabajo. No he tenido mucho tiempo para disfrutarme en los ultimos semanas, aunque me quede bien. Estoy a punto de terminar la primera version de mi software y en unas dos semanas puedo mostrarlo.

Todavía hay mas frío y nueve en las montañas alrededor de Reykjavík. Todo tranquilo y mañanas hermosas.

¡Espero que todo el mundo se vayan bien!

11. júlí á því herrans ári 2006

Í nýju ljósi

Góður vinur minn sagði við mig í síðustu viku að ég væri bara hálfur maður og það færi mér alls ekki. Þennan sama miðvikudag hætti ég að vera bara hálfur maður, merkilegt nokk.

Markús Pólus er sem sagt kominn með kærustu sem er best í heimi og sem betur fer er hún líka með ferðagenið og því verður áfram skrifað um ferðalög hér. Það sem breytist er að þankar verða meira í fyrirrúmi en áður.

18. júní á því herrans ári 2006

Ernest Pólus

Þú getur litið á mig sem Markó Póló eða Ernest Hemingway. Báðir voru flökkukindur.

Markó Póló var landkönnuður, vissi hvert hann stefndi, en ekki hvað beið hans og hvað hann myndi staðnæmast lengi á hverjum stað. Hans markmið var að kanna nýjar lendur, vinna sér nafn og að veita upplýsingar um nýjar og hagkvæmar leiðir til að flytja aðföng.

Ernest Hemingway var rithöfundur, sem vissi ekkert hvert hann stefndi, en hann vildi fara á nýjar slóðir og setjast að um tíma þar sem honum liði vel. Hann vildi líka kynna sér menningu og menningarheima og hann vildi færa þessa heima til fólksins sem hann skrifaði fyrir.

Nú veit ég ekkert hvert ég stefni né hvað bíður mín.

20. maí á því herrans ári 2006

Sylvía Nótt

Ég er búinn að sitja á mér hingað til. Nú er ég samt alveg búinn að fá nóg af þessari vitleysu. Þá er ég að vitna til síðustu ummæla hennar um að sænska söngkonan hafi sængað sig upp í aðalkeppnina.

Hver nennir að hlusta á bullið í þessari manneskju?

Ég vona að börnin á Íslandi séu hætt að dýrka hana. Framkoma hennar á að vera fyndin, en þetta er einhver lélegasta fyrirmynd sem til er. Hún er dóni, ruddi, væluskjóða og asnaleg í þokkabót!

Næstverstu mistök íslendinga voru að senda ekki Botnleðju á Evróvisjón 2003, en verstu mistökin að senda þessa flyðru!

17. maí á því herrans ári 2006

Steinskjöldur


Steinskjöldur (c) Markús Pólus
Búinn að setja inn myndaseríuna fyrir El Mirador inn í myndabloggið með smá prósa :-)

Þá er ég búinn að velja allar þær áhugverðustu frá Gvatemala, ég mun búa til nýjan yfirflokk fyrir Mexíkó og setja inn fyrstu myndirnar fljótlega. Sjá hér.


Hér er smá gáta: Hvað er á myndinni? Ég lofa þeim sem getur rétt til góðum verðlaunum og verðlaunin fara eftir því hver á í hlut ... engin núll samt :-)

Á myndinni er tvennt sem þarf að nefna og helst þarf að lýsa hvoru fyrir sig sæmilega til að svarið geti talist rétt. Þar til ásættanlegt svar er komið fram mun ég ekki gefa neitt upp. Til að geta séð myndina í ýmsum stærðum má smella á "(c) Markús Pólus" undir myndinni.

Sá sem telur sig eiga rétt á verðlaunum má eiga það við mig um áramót ef ég hef ekki enn sagt neitt!!

16. desember á því herrans ári 2005

Liverpool-Saprissa 3:0

Liverpool sigraði Deportiva Saprissa frá Kosta Ríka í Japan í morgun. Minn vaknaði kl. 4 í morgunsárið til að berja goðin augum. Mínir menn spiluðu eins og þeir ættu völlinn og Saprissa sýndi enga sérstaka takta, átti eitt gott skot á markið og þrjú hættuleg horn.

Mætti síðan í Liverpool treyjunni í skólann í morgun til að ergja kennarann. Hún vill meina að það eigi að krossfesta framherjana hjá Saprissa þegar þeir snúa til baka.

Fyrir að vakna svona snemma uppskar ég hausverk og slappleika í dag og vonandi verður hvoru tveggja farið á morgun.

Er að plana helgina og er að stefna á frumskógarferð. Myndirnar frá því um síðustu helgi nást líklega ekki inn fyrr en í næstu viku.

Viðbót: Ég er ánægður með hvernig La Nacion tók á þessum leik í umfjöllun sinni. Ekkert væl, þeir einfaldlega viðurkenndu að það hefði verið valtað yfir með fyrirsögninni "Teknir í kennslustund". Crouch er maður dagsins hjá blaðinu.

12. desember á því herrans ári 2005

Unnur Birna Miss World

Frábært hjá stelpunni, hún á þetta svo sannarlega skilið enda stelpa sem ber af sér mikinn þokka.

Hin ljóshærða fröken Kostaríka komst í topp 19, en ekki í topp 5. Mexíkó og Puertaríka í 2. or 3. sæti.

Hófí 1985, Linda P. 1989 og nú Unnur Birna 2005. Mjög gott hjá smáþjóð að eiga eina svona að meðaltali á 10 ára fresti. Við hljótum að eiga fallegasta kvenfólk í heimi. Þær vita líka af því, er það ekki?

Til hamingju Unnsa og þjóðin öll!