« Kominn á Klakann | Í sól og sumaryl »

Ernest Pólus

Þú getur litið á mig sem Markó Póló eða Ernest Hemingway. Báðir voru flökkukindur.

Markó Póló var landkönnuður, vissi hvert hann stefndi, en ekki hvað beið hans og hvað hann myndi staðnæmast lengi á hverjum stað. Hans markmið var að kanna nýjar lendur, vinna sér nafn og að veita upplýsingar um nýjar og hagkvæmar leiðir til að flytja aðföng.

Ernest Hemingway var rithöfundur, sem vissi ekkert hvert hann stefndi, en hann vildi fara á nýjar slóðir og setjast að um tíma þar sem honum liði vel. Hann vildi líka kynna sér menningu og menningarheima og hann vildi færa þessa heima til fólksins sem hann skrifaði fyrir.

Nú veit ég ekkert hvert ég stefni né hvað bíður mín.

Ummæli

#1


Var að koma frá USA, er í boltafríi, líttu við í HM hornið við tækifæri!svalur/svöl

#2

Hemingway var lengi á Kúbu, enda er þar gott að vera.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/279