Olé, olé
Fór á sýninguna Cuerpo Humano á föstudaginn var. Þessi sýning var í Evrópu fyrir nokkrum árum, ég man a.m.k. eftir henni í Berlín. Þarna er sýndur ýmis þverskurður af mannslíkamanum og getur vakið hroll hjá sumum.
Á sunnudaginn fór ég svo á mitt fyrsta nautaat. Það var alls ekki leiðinlegt, þó að það sé frekjar ljótt að drepa dýr. Tók slatta af myndum sem ég á eftir að vinsa úr.
Endaði svo daginn á því að sjá Da Vinci lykilinn í bíó. Ágætis mynd, þó ég verð að segja að það skemmi örlítið fyrir að þekkja plottið. Vildi þó ekki hafa sleppt því að lesa bókina.
Er byrjaður að pakka. Stekk upp í vél í fyrramálið og er lagður af stað heim til Íslands að hitta fjölskylduna og fara í frí. Fyrsta stopp er Gvatemala, þaðan sem ég á flug áfram til Bandaríkjanna á laugardag.


