Mæðradagur
Mæðradagurinn í Mexíkó er í dag. Til hamingju mæður!
Í tilefni dagsins er konum ýmist veitt frí hálfan daginn eða allan daginn. Ekki slæmt það. Myndi teljast ójafnrétti á Íslandi. Annars gerir það ekkert til, því mæðradagurinn er alltaf á sunnudögum á vesturlöndum.
Annars litist mér bara ágætlega á það ef allir fengju frí á mæðradaginn, konudaginn og bóndadaginn. Svo mætti líka bæta einum degi við, þ.e. feðradeginum og hafa alla þessa daga á virkum dögum.


