Hrollkalt
Það er skítkalt í dag. Ekki nema 23°C hiti og þegar að ský dregur fyrir sólu langar mann í flíspeysuna sína. Kuldinn réttlætti alveg einn stóran Café Latte á Starbucks í dag.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þverskurð af líkani af Templo Mayor í hjarta borgarinnar. Vandamálið sem Aztekarnir áttu við að glíma var að byggingarnar þeirra sukku stöðugt. Þeir byggðu því stöðugt ný hof utan um þau eldri. Templo Mayor var byggt í 7 lögum. Erfitt getur verið að átta sig á hofrústunum nema að maður þekki þetta.
Meira um Mexíkóborg, stutt yfirlit má finna hér: Mexíkóborg, Mexíkó.
Búinn að kaupa mér flugmiða til Guatemalaborgar 25. maí n.k. og kem til Klakans nokkrum dögum síðar.