Dútlað í Mexíkóborg
Þrátt fyrir að lítið nýtt hafi komið frá mér í blogginu undanfarið (nema upprifjun á gömlum sögum), þá hefur lítið komið frá mér hvað ég hef eiginlega verið að gera.
Jú, ég er búinn að skoða nokkur söfn hér í Mexíkóborg. T.a.m er ég búinn að skoða vinnustofu Fridu Kahlo og Diego Rivera og Sourmaya safnið, sem hefur m.a. að geyma fjölmörg skúlptúrverk eftr Rodin, þ.á.m. Hugsuðinn.
Ég verð víst seint búin að skoða öll söfnin hér í Mexíkóborg, þau skipta ábyggilega þúsundum.
Bý í herbergi með baði í útjaðri borgarinnar og fæ kannski stúdíóíbúð á sama stað síðustu 2-3 vikurnar sem ég verð hérna.
Annars er ég byrjaður að dútla mér að skrifa notkunartilvikagreiningu (já Use Case Analysis) fyrir hugbúnaðarkerfi sem mig langar að skrifa. Verst að þegar hún verður tilbúin þá er töluvert í land með að hugbúnaðurinn klárist ef ég byrja á honum nokkurn tíma og þar að auki fæ ég ekki krónu fyrir :-(
Var að kaupa mér regnhlíf í gær, það er kominn þessi árstími þar sem maður má ekki vera rangur maður á röngum tíma í vitlausri rigningu ...
En annars allt gott af mér að frétta. Hlakka til að fara með fjölskyldu minni til Spánar í sumar, get varla beðið!


