« Steinskjöldur | Sylvía Nótt »

Á ferð og flugi


Litagleði (c) Markús Pólus
Ekki gleyma að taka þátt í gátunni í færslunni hér fyrir neðan "Steinskjöldur"! Skylduþátttaka.

Ég get ekki annað sagt en að ég verð á ferð og flugi á næstunni. Ég átti bókuð flug frá Gvatemala til Bandaríkjanna og þaðan heim og nú er ég búinn að bæta tveimur við í viðbót.

Túrinn hefst í Mexíkóborg 25. maí, þ.e. á miðvikudaginn í næstu viku og stendur yfir í 8 daga með stoppum.

  1. Mexíkóborg - Gvatemalaborg. Kíkt við í Xela.
  2. Gvatemalaborg - Nýja Jórvík, BNA. Kíkt á félaga í NJ.
  3. Nýja Jórvík, BNA - Boston, BNA. Hitti vini í Boston.
  4. Boston-Keflavík. Teika fjölskylduna í frí.
  5. Keflavík-Alicante. Frí, frí, frí!!!


Ég er ekki búinn að reikna kílómetrafjöldann, en þetta nálgast ábyggilega heimsmet. þ.e. ef tekið er tillit til höfðatölu ríkislands mín o.þ.h. :-)

Annars lá minn alveg fyrir í tvo daga þessa viku. Ekki liggur fyrir hvað er að, en ég er ekki alveg orðinn fullfrískur. Mexíkóarnir segja að ég sé með flensu, aðrir magapest (matareitrun?) og það eina sem ég vona er að það sé ekki Malaría frá því í frumskóginum. Alla vega eru einkennin af henni þá ekki eins slæm og við væri að búast og hún er 2 vikum of seint á ferðinni. Annars er ég búinn að lofa þremur manneskjum að kíkja á lækni á morgun ef ég verð ekki orðinn fullgóður! Ég krossa fingur!

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/273