Myndavesen
Kominn aftur til Mexíkóborgar. Búinn að skrifa tvær ferðasögur sem birtast hérna á næstunni. Vandamálið er að ég á eftir að koma myndunum inn og vil helst setja þær inn í réttri röð, þess vegna bíða þær aðeins. Helgin var mjög góð.
Kominn inn á fjölskyldu, nú hefur það hins vegar breyst að ég elda fyrir mig sjálfan. Nokkuð sem ég hef eiginlega ekki gert síðan í október á síðasta ári, skyldi ég vera búinn að gleyma því? Alla vega búinn að fara í Wallmart og versla inn og á markaðinn til að kaupa ávexti. Það minnti mig á hvað verðlagið á ávöxtum heima er ferlegt (varla hægt að segja fáránlegt, er það?). Keypti 3 epli, kíló af jarðarberjum, kíló af vínberjum, 5 banana og kíló af gulrótum (grænmeti, ég veit) á svipuðu verði og litla öskju af jarðarberjum.
Spænskan er að gera mig gráhærðan. Það tala allir alltof hratt og ein skýringin á því að mér finnst ég ekki skilja neitt stundum sú að í orðabókinni minni er alveg hellingur af einhverjum "(Mex)" merkingum! Þetta er bara allt annað tungumál!


