« Land bjöllunnar | Annað stig »

Mexíkóborg

Í gær skoðaði ég forsetahöllina sem er við Zókóla hér í Mexíkóborg, en það er næststærsta torg í heimi á eftir rauða torginu í Moskvu. Í forsetahöllinni er helst að skoða veggmálverk eftir Diego Rivera (kallinn hennar Fridu Kaohla fyrir ykkur sem munið eftir myndinni um hana Fridu með ástinni minni henni Selmu Hayek). Verkið er alveg magnað, en í verkinu er saga Mexíkó og margar þjóðþekktar persónur koma fyrir. Þarna er eru lifnaðarhættir Aztekanna sýndir og sagan síðan rakin allt frá því að Spánverjar komu hingað á landafundatímum, byltingar, stríð, verkföll og andi hvers tíma og persónur eins og Benito Juarez og Hidalgo að sjálfsögðu á sínum stað.

Saga Fridu og Diego Rivera er mjög athyglisverð, einkum það hvernig þeim tókst á einhvern hátt að viðhalda allsérstöku sambandi og hjónabandi. Verk Fridu eru líka mögnuð. Diego var samtímamaður, en Frida er þekktari fyrir verk sín í dag, enda birtir hún þjáningar sínar og erfiðleika á einkar hreinskilinn hátt. Nokkuð ljóst að ég þarf að kynna mér verk hennar nánar.

Síðan skoðaði ég kirkjuna við aðaltorgið og þar á eftir fór ég upp í Torre Latino, háan útvarpsturn með útsýni yfir alla borgina. Það er erfitt að lýsa því hvernig útsýnið var, byggð hvert sem augað eygði og fjöll í fjarska sem ramma þennan hálandadal inn.

Í dag er ég svo búinn að skoða Templo Mayor, sem er að finna alveg við torgið í miðpunkti borgarinnar. Þetta hof byggðu Aztekanir í því sem einu sinni var eyja í frjósömum dal. Þeir völdu þennan stað þar sem að þeir sáu örn borða slöngu og tóku það sem tákn og kölluðu borgina Technotitlan (eða eitthvað svoleiðis). Athyglisverðast er að þeir voru í stöðugri baráttu við flóð og jarðskjálfta, hofinu þurfu stöðugt að viðhalda. Það gerðu þeir með því að byggja stöðugt ný höf utan um og ofan á þeim fyrri. Þarna voru s.s. 7 hof byggð hvert ofan á öðru á ekki lengri tíma en um 200 árum. Fyrir þá sem skoða rústirnar er erfitt að átta sig á þeim þar sem í raun sjást öll lögin frá II til VII. Við rústirnar er svo safn þar sem má sjá líkan af hofinu og þessari borg og ýmsa hluti sem hafa fundist þar og í nágrenninu.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/221