« Myndaalbúm | Frumskógarferð 2: Komið í El Mirador »

Frumskógarferð 1: Tikal


Hof nr. 1 í Tikal (c) Markús Pólus
Hér kemur loksins pistilinn minn úr ferðinni minni til El Mirador Maya borgarinnar, sem er að finna langt inn í frumskóginum í Petén. Þessa ferð fór ég í með tveimur skólafélögum og bandaríkjamönnum, þeim Kirk og Edwin. Það sem er merkilegt við þessa borg er að hún er frá forklassískum tíma (1700 f.Kr. - 150 e.Kr), en ekki klassískum (e. 150 e.Kr.) og er því mun eldri en rústirnar í Tikal.

Pistillinn mun birtast hér í nokkrum skömmtum fram á næstu viku.








Ofan við aðaltorgið í Tikal
(c) Markús Pólus


Dagur 1: Eftir næturlanga rútuferð frá Gvatemalaborg erum við komnir til Flores um kl. 5 um morguninn þar sem við áttum að vera sóttir af leiðangurstjóranum okkar. Eða það héldum við, því við vorum nefnilega í Santa Elena, en bæirnir eru nánast samgtengdir. Rútumiðinn sagði rútuna vera til Flores, en til að fara þangað hefðum við átt að hoppa upp í minni rútu stuttu fyrir komuna.

Farsíminn var eitthvað að stríða mér og ég gat ómögulega getið mér til um hvað kvenmannsröddin í símanum væri að reyna að segja mér að væri að. Eftir nokkrar hlustanir komst ég að því að ég gæti slegið inn *9 og þannig fékk ég samband við leiðangurstjórann og gat beint honum á réttan stað.





Tröppugangur
(c) Markús Pólus


Innan stundar kom leiðangurstjórinn okkar, hann Adonis, ásamt syni sínum og konu. Við settumst upp á pallbílinn og eftir nokkrar ferðir milli hraðbanka gátu tveir af okkur tekið út nægjanlega mikið fé til að greiða helming ferðarinnar, sem dugði þeim til að kaupa þann mat sem til þyrfti til ferðarinnar.

Við skildum við þau og bakpokana okkar og héldum til Tikal í smárútu og skoðuðum þessar stórkostlegu Mayarústir þar til að við tókum rútuna til baka um hádegisleitið. Þessi skoðunarferð átti eftir að reynast okkur vel síðar í ferðinni til El Mirador.






Ofan á pýramída, hof 5 í fjarska
(c) Markús Pólus


Eftir að hafa snætt og tekið út nægjanlegt fé til að greiða ferðina hittum við þau aftur og héldum til San Andrés sem er hinum megin við Petén Itcha vatnið, en þar búa þau. Þar skildum við eftir hrein föt og annað sem óþarft var í ferðinni og héldum til Carmelita yfir rykuga vegi inn í náttmyrkrið, þangað sem við vorum komnir um níuleytið um kvöldið. Carmelita er smábær inn í frumskóginum í Petén, en þar er ekkert rafmagn nema með rafala. Við sváfum í timburkofa í hengirúmum þessa nótt í Carmelita.


Múlasnarnir gerðir klárir (c) Markús Pólus
Dagur 2: Við vöknum um kl. 7 þennan morgun og eftir að hafa snætt morgunverð og gert múlasnana klára er haldið af stað. Með í ferð eru 3 múlasnar, tveir bera byrðarnar og einn er notaður til reiðar. Ásamt Adonus er konan hans og sonur. Konan sér um eldamennskuna á meðan sonurinn sér um múlasnana. Sjálfir berum við eingöngu létta bakpoka og um 3 lítra af vatni. Við erum fljótlega varaðir við blóðmaurum sem er helst að finna nálægt stöðum þar sem umferð múlasna er mikil, svo sem nálægt tjaldbúðum.

Um hádegisbil fáum við kjúkling og tortillur að borða. Erum komnir í búðirnar okkar við Mayahofið í El Tintal eftir um 6 tíma göngu þennan dag. Múlasanarnir bera miklar byrðar og eru yfirleitt örlítið á eftir okkur.






Ofan af El Tintal "hofinu"
(c) Markús Pólus


Við slöppum af í hengirúmum og drekkum Pimienta te. Okkur er sagt að plantan sé skyld kókalaufinu og eigi að vera örvandi. Teið er gott og plantan lyktarmikil. Tvö glös hafa engin sérstök áhrif á mig. Um kvöldið fáum við kraftmikla grænmetissúpu. Við förum frekar snemma í háttinn þetta kvöld eftir að hafa hlustað á Mano Chauí í græjunum sem Kirk kom með (hann var með u.þ.b. 100 diska sem skýrir hvers vegna Adonis kveinaði þegar hann sá hvað búnaður hans var mikill).

Fyrir kvöldmat förum við upp á El Tintal og horfum þar á sólarlagið. Það er byrjað að skyggja þegar við heyrum hávært býflugnasuð rétt undan toppnum. "Flýtið ykkur" segir Adonis og við stöndum upp og gerum okkur klára til að koma okkur niður af hofinu þegar við heyrum þær fjarlægjast. "Heppni, mikil heppni" segir Adonis um leið og hann útskýrir fyrir okkur hversu hættulegar þær eru: "þær ráðast á dýr eins og her og geta drepið mannfólk!".

Við höldum niður að það er aðeins farið að skyggja. Um leið og við komum niður fyrir trjátoppana er eins og það sé skollið á svartamyrkur. Ég hafði tekið með mér höfuðljósið og Adonis var með ljós, hinir ekki. Sem betur fer.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/243