Litir Maya
Lítið af frétta svo sem. Helgin nokkuð róleg, þar sem ég komst ekki með í fjallgöngu á hæsta tind Mið-Ameríku, Tajemulcu þessa helgina. Lét mér nægja rölt með skólanum á hæð hér í nágrennu. Svo var partý hjá sjálfboðaliðasamtökunum EntreMundos á laugardag, mikið fjör.
Sunnudagurinn fór í rabb og hangs í Parque Central. Undir lok dagsins var kristileg skrúðganga, fyrsta skrúðgangan af vikulegum skrúðgöngum fram að páskum.



