« Ég hef ... | Land bjöllunnar »

Hús stjörnufræðingsins


Hús stjörnufræðingsins (c) Markús Pólus
Nú er ég kominn til San Cristobal de las Casas í Mexíkó. Verð að segja að allt virðist þróaðra í fljótu bragði hér í Mexíkó og jörðin ekki eins þurr og víða í Gvatemala.
Ég var búinn að ákveða að segja skilið við Xela í þessari viku, en eftir að ég kom úr El Mirador ferðinni ákvað ég að drífa í því og notaði gærdaginn til að pakka og undirbúa. Hingað kom ég í rútu eftir um 8 tíma ferðalag. Ég ætla að skoða mig aðeins um og slappa af áður en ég held áfram til Oaxaca (borið fram hvúa-ha-ka) áður en ég held áfram til Mexíkóborgar. Annað er óákveðið en hvað ég verð lengi í Mexíkóborg fer að miklu leyti eftir því hvernig borgin leggst í mig, en hún er alræmd fyrir mikin mannfjölda, mengun og glæpi, þar sem það síðastnefnda er þó samkvæmt einhverjum heimildum ekkert verri og jafnvel betri en í mörgum evrópskum og bandarískum borgum.

Er að vinna í ferðasögunni frá El Mirador ferðinni, skelli henni inn þegar hún er fullkláruð. Myndin er úr ferðinni og sýnir vinnu fornleifafræðinga við hús stjörnufræðingsins við hofið La Tigre, en það er hið hæsta sem byggt hefur verið á tímum Maya eftir því sem vitað er.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/219