« Fótbolti og fleira | Litir Maya »

Kjötkveðjuhátíð


Hús og maís, San Andreas (c) Markús Pólus
Fór á karnival í fyrrakvöld. Vorum 8 saman úr skólanum. Þetta var eiginlega stór útimarkaður, veit ekki alveg af hverju þetta er kallað karnival, líklega af því að aðrar kjötkveðjuhátíður eru í gangi. Og öskudagur var jú í gær!

Fyrir það fyrsta, mátti finna þarna pínulítið tívolí. Í öðru lagi er það til siðs að henda pappírssnjó (því sem þeir kalla confetti eða pica). Fjölskyldur fylla þurrkaða eggjaskurn með pappírstætlum. Krakkarnir fara svo með þetta á markaðinn og brjóta eggin á höfði fólks. Aðrir kaupa pappírinn í pokum.

Hins vegar eru fátæku krakkarnir (eða villingarnir) ekkert að standa í þessu, líka miklu ódýrara að koma með hveiti að heiman!


Hveiti stráðir gringóar (c) Markús Pólus
Við gringóarnir fengum líka að kenna fyrir því. Við keyptum að sjálfsögðu okkar skammt af pappír, svona rétt til að vera með. Eftir 10 mínútur vorum við búin að koma okkur í þá skemmtilegu aðstöðu að vera elt uppi af 25 manna her, stráklingum með fulla poka af hveiti sem sátu fyrir okkur nánast hvert sem við fórum. Niðurstaðan sést á meðfylgjandi mynd!

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/211