« Eplið kvatt | Strandferð »

Xela

Þá er ég kominn til Quetzaltenangi í Guatemala. Borgin er vestarlega í landinu, um 150 km frá landamærum Mexíkó og er upp í 2200 metra hæð (loks komst upp fyrir Hvannadalshnjúk), þ.a. hér getur verið nokkuð kalt á morgnana eða allt niður í 10 gráður.

Kom til Guatemalaborgar á föstudaginn og tók svo lúxusrútuna til Xela á laugardaginn. Þegar hingað kom tók vinkona vinkonu minnar á móti mér. Sú hin sama átti að kenna mér spænsku í besta skólanum í Xela sem reyndist svo ekki vera besti skólinn (vinkona að gera annarri vinkonu greiða eins og mér var reyndar orðið ljós áður en ég kom). En ég er rólyndismaður og er ekkert að pirra mig á svona smámunum. Það var búið að redda mér fjölskyldu að búa hjá og skóla alveg rétt hjá.

Á sunnudaginn var mér boðið til kirkju. Ég var ekkert að hafa fyrir því að spyrja hvernig kirkju. Sóttur af mömmunni og systurinni og þegar þangað var komið sat vinkonan bakvið trommusett upp á sviði. Kirkjan reyndist evangelísk, en hér í Xela a.m.k. er sú kirkja á svipuðu formi og Krossinn heima. Þetta var því mín fyrsta hallelújasamkoma á ævinni. Eftir þetta var mér boðið í afmæli, þar sem saman voru komnir vinir og fjölskylda. Þetta var vægast sagt skemmtilegt og í eina skiptið sem ég hef fengið almennilega að borða.

Eftir skóla í gær fór ég að skoða aðra skóla, því ég vil vera í aðeins stærri skóla og datt niður á einn sem ég bókaði mig í. Ég mun byrja í þeim skóla næsta mánudag, en fór með skólanum í dag í gönguferð í nágrannaþorp. Þar var sundlaug, en ekkert vatn svo planið breyttist örlítið og var bara spjallað í staðinn. Hefði verið gott að komast í sund af því að það var skrúfað fyrir vatnið í hverfinu mínu og verður lokað fyrir vatnið í dag og á morgun.

Þetta lítur mjög vel út, er búinn að kynnast svona fimmtíu manns á þremur dögum, svo manni á ábyggilega ekki eftir að leiðast hérna. Hérna er mikið af ameríku- og evrópubúum í spænskunámið og sjálfboðastörfum.

Þetta voru nýjustu fréttirnar á hraðsuðuskeytaformi.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/200