Urð og grjót
Fór í ferð með sjálfboðaliðasamtökunum Quetzaltrekkers í gærkvöld. Þemað var ganga á fullu tungli á Volcan Santa María, sem er hér í næsta nágrenni. Með í för voru um 30 manns. Ég verð að segja að það er nokkuð sérstakt að ganga á fjall í myrkri, varla hægt að segja að það hafi flýtt fyrir, ég tala nú ekki um þegar ljóssins naut ekki við, enda gengið í skógi upp allt fjallið. Gangan tók um fjóran og hálfan tíma upp fjall sem er eins og keila í laginu og upp þó nokkurn bratta. Ekki ósvipað því að maður gengi upp mesta brattann á Keili, ekki í ca. 10 mínútur heldur í svona 3 tíma.
Við vorum komin upp eftir rétt fyrir kl. 6 um morguninn í tíma til að fylgjast með sólarupprásinni sem var ansi mögnuð. Þarna uppi vorum við í rúma 2 tíma og fylgdum meðal annars með eldgosi í Santamariachiquita, sem er gælunafn á gíg sem er utan í fjallinu.
Eftir einn mjólkurhristing var farið heim og sofið í 6 tíma í dag. Skrópað í skólanum í dag.
Ég er eitthvað í brasi við að koma myndunum mínum á netið, en það ætti að fara að koma.



Ummæli
Gott að vita að það er nóg að gera þarna úti.
Njóttu tímans.
Skráð af: Kalli | 16.02.06 18:04