« Xela, Guatemala | Róleg helgi »

Stytta

Lítið af mér að frétta. Nóg að gera í skólanum, bæði í náminu og félagslífinu. Stefni á fjallgöngu um helgina. Búinn að fara í sánabað í vikunni og skoða bæinn Zunil, þar sem er falleg kirkja og hús þar sem má finna dýrlinginn San Símon. Heimamenn hella víni upp í dúkkuna og gefa henni að reykja, biðja bænirnar sína fyrir framan hann og kveikja á kertum. Smá svona fjölkynngd kaþólska, eitthvað svipað og ég sá á Spáni einhvern tíma. Menn biðja um betri heilsu, betra líf og þar fram eftir götunum. Ef heilagur Símon tekur við fórninni, þ.e. víninu eða rettunum fá menn það sem þeir biðja um.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/203