« Xela | Xela, Guatemala »

Strandferð

Jæja, þá er komið sunnudagskvöld og búin að vera ágætisvika hjá mér. Fór í Salsatíma á miðvikudaginn og kom sjálfum mér nokkuð á óvart, ég hlýt að hafa lært þessa blessuðu snúnina einhvern tíma áður. Er samt langt frá því að vera lipur en ekki annað hægt að gera í því en að bæta sig.

Maturinn á heimilinu þar sem ég bjó var svona frekar dapur, ekki bara óspennandi (maður er ekki vanur að borða kornflex með mjólk úr mjólkurdufti). Það sem var þó mest pirrandi hve naumt var skammtað, miðað við skólann sem ég var í (sem er í raun inni á heimili) var um allt annað að ræða. Í nýja skólanum Sakribal óskaði ég sérstaklega eftir því að vera hjá fjölskyldu þar sem ég fengi eitthvað kjöt.

Á föstudaginn var matur í skólanum og aðeins kíkt á diskó um kvöldið og nú um helgina héldum við sjö krakkar (erum við það ekki?) á ströndina í Chimbogo. Næturgistingin á hótelinu var innan við 350 ÍSK á manninn sem var nokkru minna en rækjurétturinn sem ég fékk um kvöldið, sem verður að teljast dýr.

Það verður einhver smá bið á því að ég skelli inn nýjum myndum í bili, á efir að koma myndunum á netið.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/201