« Nætur og dagar | San Andreas de Xepul »

San Pedro de Lago Atitlan

Um helgina fór ég í ferð með 11 Gvatemölum til San Pedro við vatnið Lago Atitlan, sem er umkringt 7 eldfjöllum og þykir víst einhver fallegasti staður í heimi (það segja heimanmenn að sjálfsögðu).

Gistum þarna á ágætis hóteli, fórum á hestbak og á kajak.

San Pedro er skemmtilegur hippabær, þó nokkuð af túristum þarna og létt og þægilegt andrúmsloftið. Þarna er mjög fallegt, ekki annað hægt að segja. Ég væri svo sem ekkert hissa ef menn reyktu eitthvað annað en sígarettur þarna og það jafnvel í miklu mæli.

Ferðaþreytan hefur haft sitt að segja því ég steinsofnaði klukkan 9 í gærkvöldi og svaf til 6 í morgun :-)

Ummæli

#1

Hæ!! Hva, ertu hjá fjölskyldunni minni (Miguel Angel og Aurora)?? Hljómar svoleiðis! :-P Ef svo er ertu afskaplega heppinn!! Hver er nýji Íslendingurinn í skólanum?? Þetta er afskaplega skrítið hvað Íslendingarnir eru bara hreint alls staðar!! Hvernig líst þér annars á Sakribal?

MSN: thrudur84@yahoo.com

#2

Jú, alveg rétt, sú er fjölskyldan! Allir ferðalangar í Mið-Ameríku frá Íslandi hljóta að vera staddir hérna í Xela.

Sakribal er pottþéttur skóli, líka nóg um að vera. brosandi

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/208