San Andreas de Xepul
Á þriðjudaginn fór ég með skólanum í skoðunarferð í nágrannaþorp. Þar mátti sjá kaþólska kirkju sem hafði orðið fyrir áhrifum Mayanna. Hún er mjög skrautlega máluð (þyrfti að setja inn myndirnar). Einnig heimsóttum við hús eitt með líkneski af San Simon (sams konar og í Zunil). Til upprifjunar er það líkneski sem menn biðja til og veita fórnir í formi vínanda og sígaretta, ef heilagur Símon tekur við fórninni fá menn það sem þeir biðja um (ást, peninga, heilsu, ...)+
Ég veit ekki hvað ég át en ég þurfti endilega að fá í magann og í fyrrinótt og lá mest allan daginn í gær. Fór svo um kvöldmatarleytið beint á McDonalds og fékk mér borgara. Það var annað hvort að duga eða drepast. Ég fékk þá orku sem ég þurfti og leið betur á eftir.
Verst hvað ég á eftir að flytja margar myndir yfir á vefinn, tekur alltof langan tíma og ekki alls staðar hægt :-(


