Róleg helgi
Það varð ekkert úr fjallgöngu á Volcán Santa María þessa helgi. Var hringt í mig á laugardagsmorgun og þar sem einn félaganna lenti í árekstri var ákveðið að blása ferðina af. Í staðinn lá í í sólbaði og stúderaði og gerði tilraun til að sjá "Tú mamá también" í míníbíó en það var orðið fullt þegar við komum þ.a. í staðinn fórum við og fengum okkur rauðvín og te við torgið í kuldanum.
Það er ganga á Volcán Santa María í nótt á fullu tungli og ég er alvarlega að spá í að fara. Það þýðir hins vegar að ég missi af hluta námsins í fyrramálið og verð væntanlega eitthvað framlágur.
Af gefnu tilefni verð ég að geta þess að ég var ekki á flakki í El Salvador og er ekkert á leiðinn þangað í bráð. Er búinn að skoða flugvöllinn og veit ekki til þess að það sé neitt sérstakt að skoða þar (er alla vega ekki búinn að kynna mér það ennþá).



Ummæli
Hæ Krúsí, bara að kasta kveðju á stóra bró. Farðu alltaf varlega og komdu heill heim...hvenær sem það verður !!
Skráð af: Nana | 15.02.06 22:28