« Urð og grjót | San Pedro de Lago Atitlan »

Nætur og dagar


Parque Central, Xela að kvöldlagi (c) Markús Pólus
Svona rétt til að undirstrika það, af því að mér finnst mér ég hafa haft alltof lítinn tíma til að tjá mig hérna á netinu undanfarið, þá hef ég það alveg stórfínt og jafnvel aðeins betur en það.

Það er óþarfi að taka það fram að eftir að ég skipti um skóla, jókst félagslífið hjá mér til muna. Um leið skipti ég um fjölskyldu og sú sem ég er hjá núna er stórfín. Þetta eru hjón með 5 ára dóttur og 7 ára son sem eru alveg stórskemmtileg og vel uppalin börn. Amman býr líka á heimilinu og ég er með sérherbergi með baðherbergi innaf. Herbergið er að vísu ekki mjög stórt en engu að síður gott. Fjölskyldan er líka mjög almennileg og ég fæ nóg og gott að borða.

Xela er skemmtilegur bær að mörgu leyti. Það er töluvert minna rusl hérna en í San José, húsin eru lágreist, einnar til tveggja hæða og götur oftast nær mjóar einstefnugötur með götusteinum. Hér er mjög fallegt torg, sem er nýuppgert og nokkrar fallegar byggingar og kirkjur, en almennt séð eru húsin ekkert sérstaklega falleg á að líta utan frá, enda stundum bara um múrvegg og hlið að ræða.

Göturnar þaktar þurru ryki sem þyrlast upp í minnsta vindi. Hitastigið hér fer sjaldan upp fyrir 23°C allt árið um kring, en oftast sér maður tærbláan heiðskýran himininn og sólin getur virkað nokkuð sterk. Morgnar og kvöld eru oft köld og oft er mun kaldara í húsakynnum þegar hlýtt er úti. Flíspeysan kemur manni því oft til góða og á kvöldin leggst maður til svefns undir nokkrum lögum af teppum.

Það er margt áhugavert að skoða hér í nágrenninu, náttúran, bæirnar og mannfólkið. Maður verður þó nokkuð mikið var við fátækt þegar maður kemur út fyrir borgina, en samt virðist allt þetta fólk vera mjög nægjusamt og sátt við lífið. Hér tekur maður líka eftir því hvað fólk er áberandi kurteist og almennilegt.

Xela er svona suðupottur spænskunema og sjálfboðaliða. Hingað koma sjálfboðaliðar til að aðstoða fjölskyldur við húsbyggingar (Habitat for Humanity) eða annars til að veita samfélaginu ýmiss konar hjálp. Það er rétt að benda þeim sem vilja taka spænskunám sitt alvarlega að koma hingað til Xela ætli þeir á annað borð til Guatemala. Annar vinsæll bær fyrir spænskunema, Antigua, nálægt Ciuadad Guatemala er mikill túristabær og þangað koma nemarnir bara til að skemmta sér og djamma á hverju kvöldi, en eru lítið að spá í náminu. Antigua er mjög fallegur bær og þangað flæða ferðamennirnir. Það er því óþarfi að taka það fram að sá bær er líka nokkuð dýrari.

Í dag fór ég í skoðunarferð með kennara mínum til San Fransisco el Alto, þar sem er heljarstór markaður alla föstudaga. Þar er víst næststærsti markaður með heimilisdýr í Mið-Ameríku (næst á eftir markaði í Nikaragúa). Þarna mátti líka kaupa hvað sem er: húsgögn, ávexti, grænmeti, kjöt, klæðastranga, dúka og Guð má vita hvað.

Ég held ég sé orðinn meistari laumumyndanna; Mayarnir eru ekkert sérstaklega hrifnir af því að verið sé að taka mynd af þeim svo ég smelli bara af með myndavélina um hálsinn. Tek eitthvað af himnamyndum og skómyndum, en æfingin skapar meistarann!

Eitt nokkuð athyglisvert er að í fyrradag birtist þriðji íslendingurinn í skólanum á rúmum mánuði, sem er ekki merkilegt nema fyrir þær sakir að þetta eru einu íslendingarnir í 15 ára sögu skólans. Ég fæ þann heiður á morgun að mála íslenska fánann á veggi skólans (síðan er það venja að menn skilja eftir sig lófafar á veggnum þegar þeir hætta).

Þannig að ég sem fór til Mið-Ameríku til að þurfa helst bara að tala spænsku, er allt í einu farinn að tala íslensku á fullu. Kannski eins gott, annars aldrei að vita nema að maður gleymi því ástkæra ylhýra!

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/206