« San Andreas de Xepul | Kjötkveðjuhátíð »

Fótbolti og fleira


Beðið eftir lækninum (c) Markús Pólus
Um helgina var fótboltaleikur hér í Xela. Spilað var við lið frá Antigua. Ég verð að segja að það vantar meiri stemmningu á leikina heima. Kannski færi ég þá frekar á völlinn.

Hér er langtum meiri stemmning. Heilu blásarahljómssveitirnar voru mættar í stúkúna og allir með liðs- og bæjarsöngvana á hreinu. Allir með pappír (confetti) til að henda upp í loftið þegar liðið kom inn á völlinn, blys og flugelda sem notaður voru óspart fyrir leikinn, meðan á leik stóð, í hálfleik og eftir leik.

Svo heyrði maður ekkert annað en spænsk blótsyrði allan tímann, svo í sjálfu sér var þetta svona utankennslustofunám. Annars er þetta svo sem ekki flókið maður notar annað hvort orðið puta eða orðið mierda og bætir svo við eftir eigin höfði.

Ég hef aldrei áður séð áhorfendaskarann reyna svo vel að skemma athygli manns sem er við það að taka horn, það var gargað, hent dósum, skotið flugeldum og skvett vatni yfir greyið manninn!

Ofurhafrarnir frá Xela unnu sannfærandi sigur þrjú núll yfir aumingjunum frá Antigua í leik þar sem dómarinn veifaði gula spjaldinu svona 10 sinnum og því rauða tvisvar sinnum!

Annars var þetta bara svo afslappelsishelgi. Sól, lestur og Hjörtu spiluð. Kíkt á indverskan veitingastað. Skólafélagar mínir hafa verið heldur duglegri en ég að prófa matsölustaði bæjarins, sem segir manni bara eitt: maturinn heima hjá þeim hlýtur að vera slappur!

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/210