Stóre eplið
Það var heljarmikil snjókoma í Peabody í morgun þegar ég lagði af stað í áttina að miðborg Boston. Leigubíllinn skautaði um götur, en bílstjórinn var greinilega öllu vanur.
Rútuferðin til Nýju Jórvíkur var þægileg og tíðindalítil, nema hvað ég vaknaði af værum blundi við það að rútan var stopp og lögreglubíll á fullum blikkandi ljósum fyrir framan. Vegalögregluþjóninn stóð í gættinni á rútunni og spurði rútubílstjórann hvað væri eiginlega að, hafði líklega tekið eftir undarlegu háttalagi rútunnar. Bílstjórinn svaraði: "It has something to do with the suspension. But it seems to drive fine! I am sure we can make it all the way!". Lögregluþjónninn sér að greinilega ekki er mikið vandamál á ferðinni og svarar því "Sorry about the disruptance" og kveður. Þetta getur varla hafa verið mikið mál. Einhvern veginn fannst mér þó rútan alltaf taka einhver köst við að keyra yfir ójöfnur á hraðbrautinni og fór það í aukana eftir því sem leið á ferðina. Ábyggilega tóm ímyndun í mér.
Hér í Stóra eplinu verð ég út vikuna og ætla að reyna að skoða meira heldur en í tveimur síðustu heimsóknum (sem voru reyndar styttri). En ef ég þekki mig rétt þá verð ég bara að dúlla mér í Miðgarði. Annars byrjar þetta ágætlega, alla vega komst ég í voðalega furðulegt skap og er búin að gera at í búðarfólki og er búinn að taka ljósmyndaæði í ljósadýrðinni í kringum Tímatorg og í búðinni Leikföng'rum við sem er alveg geggjuð búð. Ég fór ekki inn til að kaupa neitt, bara til að dást að dýrðinni. Ég er um það bil að verða búinn að skella einhverjum myndum inn á Flickr. Njótið!

Ummæli
Var að skoða myndirnar þínar. Ný myndavél???
Skráð af: Bjarni
|
24.01.06 19:00
Já, ég sé það líka að þú átt eins vél. Algjör draumur, mér hefur aldrei þótt eins gaman að taka myndir - eins og mér hefur nú þótt það gaman
Skráð af: Markús | 24.01.06 23:44
hehe, ég sagði þér að þú ættir að fá þér þessa áður en þú lagðir á stað :)
Snilld, til hamingju með nýju vélinna.
Skráð af: Hjalti | 25.01.06 10:10
Sæll Markús minn... þótti slæmt að sjá að ég hefði misst af þér á msn-inu. Vonandi verður þessi ferð jafn áhugaverð og sú síðasta. Af okkur hér er allt fínt. Brúðkaupsundirbúningur í hámarki sem og undirbúningur fyrir mánaðarferð til Thailands. Ákvörðun um meiri menntun loks tekin og ætlum við að flytja til Köben í júlíbyrjun... sem sagt allt að gerast. Næ þér vonandi bráðum á spjall, elsku vinur. Heyrumst síðar. Sigga
Skráð af: Sigríður Dröfn Ámundadóttir | 26.01.06 07:57