« Græn jól | Flensa »

Nýjárskveðja


Á leið til Færeyja (c) Markús Pólus
Gleðilegt nýtt ár öllsömul og takk fyrir þau gömlu.

Síðasta ár var mjög viðburðarríkt og kannski mjög merkilegt fyrir þær sakir að ég ákvað að leggja land undir fót og nema land í Ameríku. Nú er ég búinn að nema spænsku í 8 vikur og verð að segja að það hafi gengið framar vonum. A.m.k. er ég farinn að skilja alveg helling og farinn að láta út úr mér heilu ræðurnar um trúmál og fleira þannig að ég skilst. Auðvitað vantar mig meiri æfingu í að tala rétt og þarf að taka nokkrar vikur í viðbót til að klára málfræðinu áður en ég get farið að einbeita mér að því að auka við orðaforðann og tileinka mér orðtök og málvenjur. En það er náttúrulega lengra ferli.

Það er vissulega skrýtin en samt að mörgu leyti þægileg tilfinning að vera búinn að selja kofann ofan af sér og að vera á faraldsfæti. Maður finnur samt að maður þarf að hafa félaga í kringum sig og því er kannski ekki svo sniðugt að vera sífellt á stöðugu flakki. Einhvers staðar þarf maður að setja niður hattinn sinn og þar á maður heima, eins og segir í textanum.

Næstu mánuðir eru ómótaðir. Býst þó fastlega við að ég haldi áfram spænskunámi í Gvatemala í þessum mánuði. Mig langar að kíkja á Mexíkó, ég á boð til Kolumbíu í mars og fjölskylda mín er væntanleg að hitta mig á einhverjum stað í apríl. Mig langar líka að heimsækja Perú, Ekvador, Chile, Bolivíu, Venesúela og Argentínu. Líður samt eins og þetta sé allt of mikill þeytingur og eins líklegt að þetta eigi eftir að verða allt öðru vísi. Ég held mig því áfram við fyrri plön mín að plana sem minnst fram í tímann og láta tímann leiða þetta í ljós.

Það er gott að eiga góða að. Fjölskyldu og vini sem hafa hvatt mann áfram í þessu ævintýri mínu. Það er ekki laust við að stundum hafi maður saknað góðu stundanna á Íslandi. Fyrir utan samverunnar með fjölskyldunni sakna ég þess að fara út í hreina ferska loftið heima, skreppa út fyrir bæinn til þess að rölta um í náttúrunni og tala við vini og félaga um heima og geima. Það sem ég sakna síst er samkeppnin um pallbílinn, tjaldvagninn og sumarhúsið, jólastressið og þvaður og slúður í blöðunum um pólitík, fjármál og fræga fólkið.

Fyrir utan ákvörðunina að fara utan eru stærstu afrek mín á árinu ferðalag mitt með seglskútunni Svölu til Færeyja (blogg og myndir) sem var langan tíma í undirbúningi, það að pakka niður öllu dótinu mínu á tveimur mánuðum og verkefni sem ég vann að fyrir Bóksölu Stúdenta. Allt þetta og undirbúningurinn að þessu skaraðist að meiru eða minna leyti, sem sannaði fyrir sjálfum mér að ég get fengist við marga hluti á sama tíma (sem afsannar þá kenningu að ég sé karlmaður, eða hvað?). Ætli það megi ekki kalla það afrek líka, fremur en vitfirringu að hjóla Fimmvörðuhálsinn. Ég vil ekki hafa það á samviskunni að drepa einhvern svo ef einhver ætlar að gera það, í guðanna bænum farið varlega á leiðinni niður af hálsinum!

Ég hlakka mikið til að takast á við nýja hluti á þessu ári og held að þetta eigi eftir að vera mjög skemmtilegt ár. Ég leita þangað sem hugurinn ber mig.

Þakka móttökurnar á liðnu ári.

Ummæli

#1

Gleðilegt nýtt ár gamli, þakka þau liðnu!
Skemmtu þér vel á flakkinu!

#2

Amigo,

Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu, þó sérstaklega síðasta sumar í hinni "ofurSvölu" og ógleymanlegu Færeyjaferð. Geri ráð fyrir að þú munir kaupa eða leigja skútu til að sigla á um í Karabíska hafinu áður en þú kemur heim, ég verð amk fyrsti maðurinn til að mæta.

#3

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu. Megi nýja árið vera þér gæfuríkt. Gaman verður að fylgjast með þér á vit nýrra ævintýra.
Kveðja,
Ketill

#4

Gleðilegt ár! Allt gott að frétta héðan úr Bóksöluhorninu og alls konar stuð á Origofólki. Gangi þér vél á nýja árinu!! :)

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/192