Eplið kvatt
Búið að vera reglulega fínt hérna í Nýju Jórvík. Búinn að hitta tvo félaga og skoða bæði Museum of Modern Arts (MoMA) og Metropolitan Museum of Arts (MET). Búinn að taka hátt í 300 myndir, langflestar í söfnunum en ég má víst ekki birta þær á netinu svo þið fáið ekki að sjá þær :-(
Það er sérstök stemmning að vera í NYC, þrátt fyrir háhýsin og fólksmergðina er eitthvað við borgina. Það er alla vega hægt að segja að það sé líf og fjör og arkitektúrinn spillir alls ekki fyrir. Ég fell bara þó nokkuð vel inn í fjöldann, enda annar hver maður (konur eru líka menn) er í North Face úlpu eða jakka.
Vakna eldsnemma í fyrramálið til að fljúga til Gvatemala, verð kominn til Xela á laugardaginn. Xela er víst bækistöð fyrir hjólreiðatúra og göngufólk svo að mér á ekki að þurfa að leiðast þarna. Hin sportin mín tvö verða þó að sitja á hakanum af augljósum ástæðum: Snjór á mjög erfitt uppdráttar þarna og það er um eins og hálfs tíma akstur að Kyrrahafinu!
Viðbót 27. jan.: Eini ókosturinn við NYC er hvað verðlagid er hátt þar. Við félagarnir köllum 20 dollara seðilinn Yuppie Food Stamp, það er nánast sama hvað maður verslar alltaf þarf maður að draga upp einn síikan.


