« Unnur Birna Miss World | Jafnvægi lífríkisins »

Osa skaginn

Ég fór í hreint alveg frábæra ferð um helgina, besta ferð mín til þessa.

Hitti ameríska stelpu í Monteverde sem vinnur sem sjálfboðaliði á kakóbúgarði á Osa skaganum, sem er sunnarlega kyrrahafsmegin. Mig langaði til að gera eitthvað öðru víst en að fara á týpískan túristastað og tók því boði hennar um að kíkja suðureftir.

Á Osa skaganum er að finna eitt fjölskrúðugasta lífríki jarðar skv. National Geogtaphic sem þannig talar um Corcovado þjóðgarðinn (sem þekur tæpan helming skagans). Garðinum var að vísu lokað nú í um 10 daga til að rannsaka hvers vegna aparnir hafa tekið upp á því að deyja nýverið :-(

Ég flaug til Puerto Jimenez á laugardagsmorguninn. Þegar þangað var komið þurfti ég að bíða eftir rútunni í 3 tíma, en sem betur fer birtist sú ameríska fljótlega ásamt bóndanum til að sækja mig. Býlið Köbö farm er á 50 hektara svæði 25 km sunnan við Puerto Jimenez, af því er um helmingur frumskógur og helmingur ræktað land. (Köbö er nafn á indjánaþjóðflokki sem bjó á þessum slóðum, nafnið þýðir sueño eða draumur á íslensku)

Það eru 4 ung systkini sem reka búgarðinn með umhverfisvæna ræktun og ferðamennsku í huga. Þau keyptu búgarðinn fyrir 3 árum með það í huga að reka umvhverfisvæna ræktun. Fyrir ári síðan ákváðu þau að bjóða jafnframt upp á það að fólk gæti komið og gist hjá þeim og kynnt sér búgarðinn og það sem þau hafa fram að færa.

Ég fékk einnar og hálfrar klukkustundar fylgd um búgarðinn. Fyrst fékk ég að sjá kakótré í hefðbundinni rækt, þar sem blómin voru smituð, á einu og sama tré gat bæði verið að finna smituð og heilbrigð blóm. Síðan tók við labb um frumskóginn sem var alveg ótrúleg upplifun sem varla er hægt að lýsa. Náttúran er ólýsanleg, fjölbreytileiki gróðursins, allt þetta græna, súrefnið, ég veit ekki hvað! Þarna voru heilu mauranýlendurnar, froskar, fuglar, apar, íkornar og ég veit ekki hvað. Hljóðin í umhverfinu alveg mögnuð líka. Mjög langt síðan ég hef orðið fyrir svona mikilli upplifun!

Eftir þennan frumskóginn fórum við inn á akrana þar sem þau eru að gera sínar ræktunartilraunir. Ég verð að segja að ég dáist mjög að hugmyndum þeirra, sem byggja á því að í ræktuninni eigi að ríkja svipað jafnvægi lífríkis eins og í frumskóginum (meira um það síðar í vikunni).

Á laugardeginum fór ég síðan í göngutúr til Palo Seco. Þetta er svo lítill bær að ég fann hann ekki einu sinni á kortinu áður en ég fór af stað í helgarferðina. Í raun er ekki nema um korterslabb í bæinn og á leiðinni fór ég yfir brú sem var
orðin ónothæf fyrir bílaumferð og því var vað fyrir neðan hana. Bærinn var í raun byggður í kringum fótboltavöll, í honum stóðu tvær kirkjur (ein fyrir kaþólikka og ein fyrir mótmælendur), ein sjoppa, einn skóli og ca. 20 hús. Það var nú allt saman. Síðar um daginn fór ég með þeirri amerísku og kokknum að busla í ánni.

Ég var heppinn að því leytinu til að ferðamannatímabilið er rétt að byrja og þess vegna voru engir aðrir gestir þarna, ég var því mjög náið með allri fjölskyldunni sem gerði þetta mun skemmtilegra en ella. Þarna kom á laugardagskvöldið trukkur um langa leið með timbur og fleira efni, þar sem foreldrar systkinanna eru að flytja suður eftir og ætla annað hvort að setjast að hjá þeim og kaupa sér jörð nærri. Pabbinn ætlaði líka að koma, en komst ekki af því að ein kýrin þeirra var að bera í fyrsta skipti. Þarna fékk ég líka þann allrabesta mat ég hef fengið hérna í Kostaríka. Spurning um að krækja í kokkinn!

Ég tók fullt af myndum sem ég ætla að dunda mér að setja inn næstu daga.

Mæli með þessu stað fyrir alla sem hafa áhuga á náttúru og náttúruvernd og langar að prófa eitthvað nýtt. Eins og er þá er verðum mjög stillt í hóf á þessum stað, en hver veit hvað síðar verður.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/145