Myndir frá Gvatemala
Myndirnar frá Gvatemala eru allar komnar inn í myndabloggið með fullt af textum. Búin að vera nokkuð þung vika við að gera ekki neitt.
Veðrið er náttúrulega frábært, eins og alltaf þó maður þurfi nú að vera með tvö teppi á nóttunni.
Ég er búinn að fá nýjan kennara og það er ágætis tilbreyting. Það er haldið áfram að troða inn í hausinn á mér nýjum fróðleik sem ég þarf að æfa mig á.
Kem til með að fara til Puerto Jimenez nú um helgina, þar sem ég gisti á kakóbúgarði. Mér þykir súkkulaði gott svo það er aldrei að vita nema að ég setjist þarna að :-)



Ummæli
Morgunblaðið segir á forsíðu í dag að Kosta Ríka spili opnunarleik HM í sumar á móti Þjóðverjum. Áfram Kosta Ríka !
Skráð af: Ketill | 10.12.05 20:11
Mikið rétt! Kostaríkanir eru himinlifandi yfir þessu og ætla að vinna leikinn!
Skráð af: Markús | 12.12.05 20:03