« Þúfa | Myndir frá Osa skaganum »

Mauranýlenda


Mauranýlenda (c) Markús Pólus
Maurar eru merkilegt fyrirbæri, það er eitthvað heillandi við það skipulag sem þessi litlu grey viðhafa.

Oftar en ekki rekst maður á heilar mauranýlendur, sem geta verið gríðarstórar. Þar ræður ein drottning ríkjum sem er fær um að verpa 30.000 eggjum á dag og hún getur valið hvaða tegund af eggjum hún verpir eftir því hvað hún þarf hverju sinni. Þannig getur hún framleitt hermaura, laufskera, eftirlitsmaura eða vinnuþræla.

Þrælarnir sjá um skipulag í búinu en fá aldrei að fara út úr því, þetta eru veikustu maurarnir. Hermaurarnir sjá um að verja nýlenduna og laufskerarnir fara upp í tré til að sækja lauf í búið. Eftirlitsmaurarnir stökkva upp á laufin og grandskoða þau þannig að engin sýkt lauf komist í búið og skemmi fæðuna. Þeir borða ekki laufin sjálf heldur rækta með þeim sveppagróður sem þeir síðan borða.

Ef nýlendurnar verða mjög stórar getur það komið fyrir að til verði fleiri en ein drottning. Þá verður stríð milli þeirra og sú sem tapar verður að hypja sig en fær hluta mauranna og eignir búsins með sér og fer að stofna nýja nýlendu.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/161