Liverpool-Saprissa 3:0
Liverpool sigraði Deportiva Saprissa frá Kosta Ríka í Japan í morgun. Minn vaknaði kl. 4 í morgunsárið til að berja goðin augum. Mínir menn spiluðu eins og þeir ættu völlinn og Saprissa sýndi enga sérstaka takta, átti eitt gott skot á markið og þrjú hættuleg horn.
Mætti síðan í Liverpool treyjunni í skólann í morgun til að ergja kennarann. Hún vill meina að það eigi að krossfesta framherjana hjá Saprissa þegar þeir snúa til baka.
Fyrir að vakna svona snemma uppskar ég hausverk og slappleika í dag og vonandi verður hvoru tveggja farið á morgun.
Er að plana helgina og er að stefna á frumskógarferð. Myndirnar frá því um síðustu helgi nást líklega ekki inn fyrr en í næstu viku.
Viðbót: Ég er ánægður með hvernig La Nacion tók á þessum leik í umfjöllun sinni. Ekkert væl, þeir einfaldlega viðurkenndu að það hefði verið valtað yfir með fyrirsögninni "Teknir í kennslustund". Crouch er maður dagsins hjá blaðinu.


