« Gvate,Gvate! (seinni hluti) | Myndir frá Gvatemala »

Jólin 2005

Í stað þess að senda mér jólakort, megið þið senda mér kveðju hér :-)

Ég notaði tækifærið og skellti inn gestabók í leiðinni. Það er alltaf gaman að fá kveðjur frá vinum, vandamönnum og öðrum velunnurum :-)

Ummæli

#1

Hehe... Var nú ekki búinn að plana jólakveðju en þú færð samt eitt knús...

Vonandi hefurðu það frábært yfir jólinn :)

Merry christmas

#2

Sæll minn kæri bróðir
Vonandi hefur þú það gott þarna hinu megin við hafið.svalur/svöl
Ég ætla ekki að senda þér jólakveðju núna en langaði að senda þér ástar og saknaðarkveðjur. Þú færð síðan jólakveðjur þegar nær dregur að jólum ;)

#3

Af því ég var að skrifa jólakortin í kvöld, þá nota ég sama tækifæri og óska þér gleðilegra jóla, og ánægju og ævintýra á heimshornaflakki komandi árs. Þakka allt þetta gamla góða og hlakka til 'more of the same'
Og nei, ég er ekki enn í standi fyrir knús hlæjandi

#4

Sæll Markús frændi,

Vonandi verða jólin gleðileg þó þau verði líklega frekar rauð í þetta skiptið svalur/svöl
Jólakveðjur frá okkur Effie hlæjandi

#5

Kæri vinur.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þakka skemmtilegar samverustundir á liðnum árum. Hafðu það sem allra best um hátíðirnar. Hittumst hress á nýju ári.

Kv, Hófí.

#6

Blessaður gamli... bara að senda þér jólakveðju - vona að þú hafir það gott þarna yfir jólin og áramótin... jörðin hvít hérna núna en stefnir samt í rauð jól... :surprised

kveðja af Klakanum,
Kata saklaus

#7

Sæll Markús.

Megir þú hafa það sem allra best yfir jólin og áramótin.

Frostkveðjur,
Ketill,Krístin og Konráð Björn

#8

Hææææ elsku bró, gleðileg jól krúttinn minn. Hafðu það sem allra best yfir jól og áramót. Eigum eftir að sakna þín yfir jólamatnum á aðfangadagskvöld. Salut!hlæjandi

#9

Gleðileg Jól Markús og njóttu vel þarna úti.

#10

Sæll,

Ég var eitthvað búinn að heyra af því að þú hefðir lagt land undir fót, hafði ekki fengið það staðfest fyrr en núna.
Hafðu það sem allra best um jólin.

Kk.
StK

#11

Gleðileg jól Markús, við sendum þér jólakort
jólakveðja

Anna, Kalli og Þórunn Lovísa
svalur/svöl

#12

Gleðileg Jól.
Fjölskyldan Reynihvammi 10.

#13

Sæll og blessaður Markús

Flott síða hjá þér. Við óskum þér gleðilegra jóla, vonandi hefur þú það sem allra best yfir hátíðarnar.
Jólakveðja,

Ágústa og Óli

#14

Sæll og blessaður Markús.

Mig langar að kasta á tig jólakveðju og vona að þú hafir tad sem allra best yfir hátíðina.
Jólakveðja Anna Steinunn

#15

Hæææ, Nana hérna aftur.... vona þú hafir það rosa gott!! Það er erfitt að vera í öðru landi og ekki með fólkinu sem mar er vanur að vera með á jólunum, okkur familíunni... En það er gaman að gera e-ð nýtt og allir vilja prófa það. Þú ert hugrakkur skrákurhlæjandi
:-* kiss

#16

Sæll meistari, farðu varlega, því við erum litlir og heimurinn stór... eða er það kannski öfugt... flott hjá þér að fara í leiðangur og líta í öll heimsins horn, sé að þú byrjar ekkert á því að halda þig í skugganum. Ekki glata vegabréfinu. Á eftir að fylgjast með þér. Gleðilegt ár og takk fyrir ánægjuleg kynni. Eða eins og Laxnes sagði: Þetta fer allt einhvern veginn þótt margur efist um það á tímabili.

#17

Sæll Markús,

Jólin og árið til þín og þinna. Varð hálf klökkur þegar ég sá þessar myndir af henni Svölu okkar á leiðinni út, óaðvituð um hvað beið hennar blessaðrar.. Skilst að hún sé í klössun í Hafnarfirði, allt gott um það. Sjáumst kanski í vor í þriðjudagskeppni hver veit.

Bestu kveðjur Jón Víkingur

#18

Sæll Markús minn!
Vona þú hafir átt góð jól. Get fullvissað þig um að þú þarft ekki sakna veðursins hér á klakanum. Vona að nýja árið færi þér mikla gleði og hamingju. Kær kveðja... Sigga... e.s. kær kveðja frá strákunum mínum, bæði litla og stóra.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/125