Guatemala
Jæja, þá er ég kominn með farmiðana til Guatemala í hendurnar. Nennti ekki að þvælast til Nigaragúa í rútu í sólarhring fram og til baka, bara til að endurnýja ferðamannaáritunina hér í Kostaríka.
Verð á hóteli í Guatemala borg í 3 nætur svo ég ætti að geta skoðað eitthvað. Óvíst hvað ég geri, en það er margt áhugavert í Guatemala sem getur verið að ég verði að bíða með að skoða, t.a.m. Mayarústirnar í Tikal. Antigua er nærri og sögð mjög falleg borg, svo líklega kíki ég þangað.
Annars kynntist ég afgreiðsluhraðanum hér í Kostaríka í vikunni. Var búinn að reka mig á að hér eru víða biðraðir, oft númerakerfi og setustofa fyrir gesti.
En ég þurfti að mæta 3 daga í röð til að fá miðana. Fyrsta daginn var búið að kynna fyrir mér pakkaferð til San Andrés (lítil eyja utan Kolumbíu með 5 hótelum, allt innifalið) og ég sá fyrir mér afslöppun á ströndinni með kokteil í annarri. Eftir að það varð ljóst að það var allt uppbókað út desember, voru mér birtir nokkrir kostir og ég fór heim að skoða þá og kom daginn eftir staðráðinn í að kaupa pakkaferð til Guatemala með einni nótt í Guatemala borg og 2 nóttum í Antigua. Flugið var bókað og ég greiddi inn. Í gær kom ég svo til að sækja miðana, en þá hafði komið í ljós að ekki var hægt að fá inni á hótelinu í Antigua. Það fór nokkur tími í þetta en að lokum fékk ég pakkann í hendurnar.
Auk þess pantaði ég flug til Puerto Jimenez (þeir sem vilja geta skoðað kortið í fyrri grein minni um Kostaríka, en þá er bærinn á Osa skaganum sunnarlega kyrrahafsmegin, þar sem Golfito flói er), en ég vona að flugmiðinn skili sér í póstinum til mín. Þarna ætla ég að kynna mér kakórækt um næstu helgi.



Ummæli
Blessaður
Ég sendi þér póst seinasta föstudag, en ég veit ekki hvort hann hafi borist þér.
Sendu mér póst ef hann hefur ekki borist og látu mig vita á hvaða email ég á að senda á.
Kveðja,
Helgi
Skráð af: Helgi Þorvarðsson | 05.12.05 19:39