« ¡Feliz Navidad! | Nýjárskveðja »

Græn jól


Hestaskrúðganga (c) Markús Pólus
Jólin voru fremur róleg að þessu sinni og lítið jólaleg. Ekki laust við að maður saknaði stemningarinnar heima; að kíkja í bæinn á Þorláksmessu og hitta alla vinina, borða jólamatinn með fjölskyldunni og dreypa á rauðvíninu meðan pakkarnir eru teknir upp.

Ég get samt varla sagt að ég sakni jólastressins og jólakaupaæðisins heima. Hér í San José var jólalegt um að litast fyrir jól og eiginlega hvít jól í miðbænum. Síðustu dagana fyrir jól kaupir fólk pappírsnjó (confetti) af götusölum og leikur sér að því að henda þessu yfir og á fólk sem það mætir. Þetta er einkar gaman hjá unglingunum og yngsta fullorðna fólkinu, sem skemmta sér hið mesta og nota þetta til að vekja athygli hjá hinum kyninu. Það skemmtilegast við þetta var að allir tóku þátt í þessu og enginn var að ergja sig yfir þessu. Litlu börnin sátu á öxlum foreldra sína og sáu um að strá yfir aðra, gamlir sem ungir skemmtu sér. Síðustu dagana fyrir jól voru torgin hvít af þessu, sem varð enn til að auka jólastemninguna. Áður en maður fór í háttinn varð maður að hrista þetta dót úr fötunum sínum til að losna við það.

Á aðfangadag svaf ég fram eftir og fékk svo Tamal í morgunmat (brauðdeig með kjúklingi, svínakjöti og grænmeti pakkað inn í pálmalauf) sem bragðaðist ágætlega. Skrapp á netkaffihúsið og eyddi svo deginum í að lesa (nokkuð sem ég hef gert allt of lítið af, nema að það tengist eitthvað spænskunáminu). Um kvöldið fékk ég svo svínakjöt með puru (chicharones) sem voru langt frá því að vera eins ljúffengar og heima, en í lagi þó.

Snemma morguninn eftir lagði ég af stað í ferð til Isla Tortuga, sem er á Kyrrahafsströndinni. Ekið var með rútu til bæjarins Punarenas og þar var tekin bátur til eyjarinnar, sem er örlítil eyja sem er eiginlega ekkert nema eitt stykki strönd með veitingastað og nauðsynlegri þjónustu. Fékk mér snemmbúna Piña Colada í tilefni dagsins um borð í bátnum. Borðuðum svo á fínu hlaðborði á ströndinni. Kynntist þarna mexíkóum sem ég eyddi mestum tímanum með. Náði mér þarna í smá roða í kinn og hendur. Maður er aldrei of var um sig, ég hélt að ég slyppi við að setja á mig sólaráburð þar til við kæmum á ströndina, en gleymdi því að þó maður sé hlémegin á bát gætir endurkastsins :-( En gerir ekkert til þó maður fái smá roða, hjá mér a.m.k. fæ ég alltaf roða áður en ég fæ lit og ætli það gildi ekki um fleiri Íslendinga! Maður var svo þreyttur og ánægður eftir skemmtilega ferð um kvöldið.

Það er mikið um hátíðir og fjör þessa dagana í San José. Í Zapote hverfinu stendur yfir hátíð frá því fyrir jól og fram til 2. janúar, þar sem meðal annars eru nautaöt. Í miðbæ San José í fyrradag var nokkurs konar hestasýning og í gær kjötkveðjuhátíð (carneval) með viðeigandi skrautbúningum, dönsum, undirspili og látalátum. Sýningin fer fram á götum á talsvert stóru svæði og mannfjöldinn er gríðarlegur.

Ég kíkti á tvö söfn sem rekin eru af Kostaríkabanka, gullsafnið og gjaldmiðlasafnið. Bæði söfnin mjög áhugaverð, gjaldmiðlasafnið með sögu gjaldmiðlanna í Kostaríka, allt frá kakóbaunum til þeirra gjaldmiðla sem við þekkjum í dag. Gullsafnið var með gullmunum frá tímum indjánanna og þar er sýnt m.a. hvaða aðferðir þeir notuðu til að búa til munina. Þarna sá ég töluvert fleiri gullmuni heldur en á safninu í Guatemala, þó að það safn hafi verið tilkomumeira að öðru leyti. Þarna var líka tímabundin sýning á grímum sem notaðar eru í hátíðum víða um Mið-Ameríku.

Hvað varðar nautaötin í Zapote má geta þess að þegar atvinnunautabanar (hér drepa þeir þó ekki nautin) eru ekki í hringnum má almenningur fara í hringinn og ergja nautið, sem eru þó sérstaklega valin, smærri og með minni horn, en þau eru þó engu að síður hættuleg. Menn þykja mjög hugdjarfir (og stundum heimskir) að þora að fara í hringinn. Árlega slasast einhverjir, jafnvel alvarlega, við það að nautið stingur þá eða kremur upp við vegg þegar þeir reyna að forða sér. Að sjálfsögðu komast heldur ekki allir upp með að lifa þetta af, en engu að síður finnst fólki gaman að horfa á þetta og reyna fyrir sér í þessu.

Nú er ég byrjaður að hugsa um hvert ég mun halda eftir Kostaríka, enda er dvöl mín hér farin að styttast í annan endann (þið megið giskið á hvern). Engin niðurstaða komin á það ennþá.


Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/190