« BMW 318i til sölu | Kominn til Kostaríka »

Minning

Nú er ég kominn til Boston og á morgun held ég áfram til San José í Kostaríka. Síðasta vika hefur verið ansi strembin við að pakka öllu niður, skila af mér íbúðinni og í tengslum við andlát afa míns. Ég verð að játa að það var ansi erfitt að ljúka vikunni með því að kveðja afa á sama tíma og ég var að fara frá mínum allra nánustu.

Ég er mjög stoltur af afa mínum sem var einstaklega góður maður. Mig langar að minnast hans hér á síðunni með því að birta hluta af æviágripi hans og minningu sem ég skrifaði um hann.

Kjartan Ólafsson fæddist á Strandseli í Ögurhreppi við Ísafjarðardjúp 17. febrúar 1913. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 25. október s.l.

[...]

Kjartan fæddist að Strandseli og ólst þar upp hjá foreldrum sínum.
Hann lauk prófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni og síðar frá
Samvinnuskólanum 1933. Hann var verslunarstjóri um tuttugu ára skeið,
fyrst hjá Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi og Eyrarbakka og síðar hjá
Kaupfélagi Hafnfirðinga. Þá var hann starfsmaður Samvinnubanka Íslands
frá stofnun hans og síðustu árin fulltrúi þar, en hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir 1983.

Kjartan starfaði mikið að bindindismálum, auk þess sem hann var mikill
áhugamaður um ferðalög, ferðamál og ekki síst ættfræði. Hann starfaði
í ungmennafélögum í N-Ísafjarðarsýslu og í Árnessýslu. Kjartan átti
sæti í framkvæmdanefnd Stórstúku Íslands 1961-1981. Hann varð
stórriddari 1963 og frkvstj. Stórstúku Íslands 1963-1978. Hann var
fulltrúi IOGT á mótum og þingum erlendis, auk þess sem hann var í
stjórn norræna bindindissambandsins og fulltrúi Íslands í norræna
góðtemplararáðinu. Þá sat Kjartan í stjórn reglu Musterisriddara í
þrjátíu ár.

Elsku afi minn.

Ég veit að þú ert sáttur við að yfirgefa þennan heim. Ekki bara vegna
þess að þú ert búinn að eiga góða ævi og hefur afrekað margt og svo
mikið meira en margur annar, heldur líka vegna þess að þú ert búinn að
vera fyrirmynd svo margra allt í kringum þig.

Gömlu, góðu, en einföldu gildin vilja oft gleymast nú á tímum hraða og
kappsemi. Það er ekki sjálfgefið í dag að finna fólk sem man öllum
stundum eftir því að bera virðingu og þakklæti til allra sem þeir
umgangast, eru ávallt trúir sjálfum sér og geta borið höfuðið hátt,
þegar erfiðir tímar ganga í garð. Það eru líka fáir sem hafa jafn
markvisst gefið af sér í lífinu og á sama tíma gert það á þann hógværa
hátt, sem þú hefur gert. Orðið yfir þetta er ákaflega fallegt, en sést
allt of sjaldan, en það er orðið manngöfgi.

Ég mun minnast þín með stolti og veit að þú munt fylgja mér á
ferðalögum mínum á komandi árum. Þú ert alltaf hetjan mín.

Ástar- og saknaðarkveðjur,
Markús

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/66