« Minning | Kostaríka »

Kominn til Kostaríka

Þá er maður kominn til Kostaríka. Ég stoppaði við í Boston á leiðinni og aðstoði frænda minn við að hreinsa laufin í garðinum hjá honum. Þetta þarf hann að gera um hverja helgi í 2-3 mánuði og var hann mjög feginn að fá aðstoð enda tekur þetta hann yfirleitt rúmlega háldan daginn.

Flugið til Kostaríka með viðkomu í El Salvador var um 7 klst.og flugvöllurinn í San Salvador það lítill að áhyggjur mínar að finna ekki áframflugið urðu að engu. Hin spænskumælandi Lara Kroft gerði hina bráðhuggulegu Angelinu Jolie heldur ekki síðri.

Á flugvellinum tókum við mér fjölskyldan, don Elliott, húsmóðirin Luz og 12 ára dóttir þeirra. Þetta er indælisfólk, karlinn óþreytandi við að ræða við mig um heimsmálin, konan passar upp á að ég fái nóg að borða og mér líði vel á meðan dóttir þeirra hjálpar til við að þýða einstök orð milli ensku og spænsku milli þess sem hún setur upp dramatískar sápuóperur með brúðunum sínum.

Heimilismaturinn er margs konar, bæði kjöt og fiskur, en áberandi er að meðlæti með nánast öllum mat er baunir, rauðar eða gular (frijoles rojas y blancas) og hvað ávextirnir hér eru einstaklega góðir. Ávaxtasafar hjá fjölskyldunni eru ávallt nýpressaðir, t.d. úr smávöxnum appelsínum (narañjitos).

Hér er sex tíma munur og ótrúlegt hvað maður verður fljótt þreyttur síðla dags. Ekki hjálpar hvað maður þarf að einbeita sér mikið við námið. Tungan þvælist ennþá fyrir manni, ég bíð spenntur og óþreyjufullur eftir því að geta farið að tala fljótandi í takt við það sem ég á að kunna (eða kunni og er að rifja upp) ...

Fyrsta daginn fylgdi húsfaðirinn mér í strætó í skólann fram og til baka og í dag var mér sleppt lausum. Skólinn er mjög fínn og ég er í einkakennslu þessa vikuna hjá skólastýrunni. Fyrsti dagurinn var frekar frjálslegur, aðallega verið að kynna mig fyrir landinu og tekinn labbitúr um miðbæ San José, en skólinn er nánast í hjarta borgarinnar, en núna erum við að rifja upp grunninn og gera talæfingar.

Ég byrjaði daginn á því að koma of seint, því að í gær gekk svo vel að komast í skólann að ég hélt að ég gæti lagt 5 mín. seinna af stað. En það dugði nú heldur betur ekki til, því að eftir 5. mínútna bið kom strætó en var svo fullur að hann þaut framhjá án þess að stoppa. Fólk var í umvörpum farið að veifa leigubílum í kringum mig. Eftir aðrar 10 mín. bið kom annar strætó, en þá var umferðin mun þyngri en daginn áður. Heildarferðin tók mig því 50 mín. í stað 15mín. daginn áður.

Meira síðar ...

San José, Kostaríka

Ummæli

#1

Þú er greinilega í góðum höndum. Baunir með flestum mat finnst mér áhugavert þar sem ég er sérstakur áhugamaður um baunarétti. Grínlaust.
Þú setur kannski uppskrifir inn á vefinn ! tungan lafandi
Gangi þér allt í haginn.

#2

Hæ Makki minn! Það er æðislegt að fá að heyra hvað þú ert að brasa við dags daglega. Fá lýsingar á fjölskyldunni og umhverfi. Gott að það er hugsað vel um þig, elsku brósi minn. En Markús næsta verkefni þitt er að læra að vera stundvís, koma frekar 5 mín fyrr en seinna, ég þekki þetta sjálf haha!! Have fun, lov yakyssandi

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/67