Húmör spanjólanna
Mér finnst spænskur húmor skemmtilegur. Eða má maður ekki segja spænskur? Þá á ég reyndar við brandara á spænsku. Þetta eru svona stuttar sögur með meinfyndnum húmor. Stundum svolítið barnalegar, en skemmtilegar samt. Hér er dæmi (á frummálinu líka fyrir þá sem það vilja):
Soy ingeniero mecánico, y en la fábrica donde trabajé premiaron a los empleados porque imponemos una marca excepcional de cinco años sin que ocurrío un accidente que retrasó el trabajo. Por este motivo nos hicieron un banquete en el cual todos disfrutamos del pavo, jamón, ensaladas y postres que preparó un chef. Sin embargo, al día siguiente la mitad de los empleados no se presenta a laborar porque están enfermos del estómago.Ég er vélaverkfræðingur og í verksmiðju sem ég vann í verðlaunuðu þeir starfsfólkinu fyrir að hafa slegið einstakt met, í fimm ár hafði ekki komið fyrir að neinn væri frá vinnu vegna slyss. Af þessari ástæðu var þeim haldin veisla, þar sem allir nutu kalkúns, skinku, salads og eftirrétta sem kokkur reiddi fram. Næsta dag kom meirihluti starfsfólksins ekki til vinnu sökum magakveisu.
Hér er annað dæmi:
Cuando regresé de mi viaje por Candad para ver a mi abuela, me detuvo un policia de caminos por conducir con exceso de velocidad. Agradecida por recibir una advertencia y no una multa le regalé una bolsita de galletas de mi abuela y segui mi camono. Al rato me detuvo otro agente. Le pregunté qué pasa y me dijo sonriende: "Nada, me dijeron que usted anduvo regalando unas exquisitas galletas de chocolate".Þegar ég kom úr ferðalagi mínu frá Kanada, þar sem ég heimsótti ömmu mína, stöðvaði mig vegalögreglan fyrir að aka of hratt. Þakklátur fyrir að fá áminningu en ekki sekt, gaf ég honum lítinn poka af kexi frá ömmu minni og hélt áfram ferð minni. Stuttu síðar stöðvaði mig annar lögregluþjónn. Ég spurði hann hvað væri að og hann sagði við mig brosandi: "Ekkert, mér var sagt að þér færuð um og væruð að gefa einstaklega gott súkkulaðikex".
Hvernig finnst ykkur svona húmor? Er spænskur húmor betri en íslenskur? Eigið þið dæmi um svipaðar sögur?



Ummæli
Trúi því varla að enginn þori að viðurkenna að hafa jafn aulalegan húmor og ég.
Skráð af: Markús | 06.12.05 19:05
I think you are the only one.....
Skráð af: Hjalti | 08.12.05 11:38