Helgin
Að sjálfsögðu svaf ég aðeins frameftir á laugardeginum (vanur að vakna kl. 6:30 alla morgna, ekki séns að
ég gerði það þennan morgun) og um kvöldið skellti ég mér í partý í líkamsræktarstöðinni minni, þar sem maður hélt áfram að æfa sig í spænskunni undir ísköldum bjór og kynna sér nýja dansa (í þetta sinnið Suco í framhaldi af Salsa og Merengue frá því kvöldið áður). Var ekki í neinu stuði til að djamma þetta kvöldið svo ég fór heim þegar partýið var búið.
Á sunndeginum skellti ég mér til Escazu eða Snobbhill eins og mætti kalla það. Þarna eru að því að sagt er fínustu og flottustu húsin, verslanirnar, mennta- og heilsukerfið. Bærinn skiptist reyndar í þrjá bæjarhluta. Ég tók strætó upp í San Antonio de Escazu og labbaði niður eftir niðrí neðsta bæjarhlutan San Rafael de Escazu. Ætli gangan hafi ekki tekið mig svona ca. 90 mínútur og þá var gott að skella í sig einni pizzu og einum ísköldum. Escazu er allt öðru vísi en San José, ekki jafnmikil læti og umferð og þarna er allt miklu snyrtilegra. Það er nefnilega mjög mikið rusl í San José (þó ég sé hættur að sjá það) og víggirt hús ekki í eins miklu mæli og í San José (þó þau megi sjá líka). Þarna koma nefnilega girt hverfi í staðinn :-) Ég gæti frekar hugsað mér að búa þarna en í San José, ef ég ætti að velja á milli þessara staða.



