« Pisoti | Myndir frá Monteverde »

Ferðalag til Monteverde


Kanópían í Monteverde (c) Markús Pólus
Það var komið að því að mig langaði að sjá eitthvað meira en San José. Mér stóð til boða að fara með þremur Norðmönnum í paintball, en ég kom sko aldeilis ekki til Kostaríka til að fara í einhverja slíka leiki. Auk þess heldur langaði mig að fara og gista yfir nótt einhvers staðar svo ég ákvað að ferðast einn og skella mér til Monteverde.

Monteverde er norðarlega í Kostaríka fyrir miðju landinu og upp í fjöllunum. Þar er regnskógur eða öllu heldur skýjaskógur (e. cloud forest) ef það fyrirbæri er til í íslensku máli. Það þýðir að þar mest allan tímann 100% raki. Hann á að vera sá best varðveitti skýjaskógur í landinu. Montverde er svæði sem var áður byggt indjánum, en bandarískir kvekarar sem vildu flýja herskyldu á tímum Kóreustríðsins, fluttu hingað 1949 og keyptu hér landsvæði í þessu landi sem þá var nýbúið að afnema herinn. Þarna tóku þeir m.a. upp á því að rækta osta og kaffi.

Svæðið getur verið erfitt heim að sækja yfir regntímabilið (frá maí fram í nóvember) því vegirnir verða erfiðir yfirferðar sökum aurs, hola og skemmda á vegunum sjálfum. Þarna eru þjóðgarðar og náttúruverndarsvæði og góðar aðstæður til fuglaskoðunar.

Rútan frá San José lagði af stað klukkan 6:30 um morguninn og var kominn til Monteverde (þorpið heitir reyndar Santa Elena) um kl. 11:30. Eftir að hafa skráð mig inn á hótelið (sem var svona með því flottara þarna, soldið amerískt, en ég ákvað að taka ekki neina sénsa þessa helgi), skellti ég mér í s.k. Canopy Tour í Selvatura, (sem er ferðalag eftir stálvírum milli palla sem festir eru í trjám. Þarna er maður settur í klifurbúnað og sendur niður eftir þessum línum á mismunandi miklum ofsahraða :) Ótrúlega gaman, ég mæli algjörlega með þessu, þessi túr var líka góður, enda hafði prófesoran mín mælt með honum.

Síðdegis var gott að leggja sig og þegar ég vaknaði var klukkan orðin rúmlega níu að kvöldi. Ekki gott, því miðað við reynslu mína þá var ekki öruggt að ég gæti borðað neins staðar. En Lonely Planet bókin benti á prýðisstað sem var opinn til kl. 23, sem ég skellti mér svo á. Eftir matinn var ekki neitt annað að gera en finna sér einhvern félagsskap svo ég skellti mér á einn bar sem bókin góða benti á. Þar hitti ég þrjá þjóðverja og tvær bandarískar stelpur og fylgdi ég þeim á annan stað þar sem við skemmtum okkur ágætlega innan um þorpsbúa.

Morguninn eftir skellti ég mér síðan í Finca Ecologica í labbitúr. Þetta er lítilll náttúruverndargarður, þar sem maður getur valsað að vild um stíga án þess að þurfa að kaupa sér fararstjóra. Þarna átti ég ágætan göngutúr og kærkomna líkamsrækt. Ég hafði ca. 3 tíma og vildi alls ekki missa af rútunni til baka og ákvað því að byrja á að fara bláu leiðina (sjá mynd í myndabloggi) sem átti að taka tvo tíma. Þegar ég var hálfnaður með hana ákvað ég að skella mér inn á rauðu leiðina og sjá til. Það var heilmikið upp og niður um mjög skemmtilegt gljúfur. Ég tók meiripartinn af þeirri rauðu líka og kláraði túrinn á tveimur tímum samt.

Það sem var áhrifamest var að þegar ég var að stytta mér leið milli rauðu og bláu leiðarinna (eftir merktri leið), þá varð ég skyndilega var við brak, eins og þegar grein brotnar. Mér varð litið til hliðar, ég sé eitthvað detta og sé síðan liggja á jörðinni ca. 3 metra frá mér gula slöngu, sem lá eins og þráðbein grein sem lá í áttina til mín og horfði á mig. Þar sem ég var ekki með myndavélina uppi við ákvað ég að skipta mér ekkert meir af henni.

Eftir göngutúrinn stoppaði ég á leiðinni í átt að þorpinu á veitingastað og gat þar látið renna af mér svitann, borðað góða máltíð og kælt mig með einum Imperial.

Nokkru eftir áætlaðan tíma kl. 2:30 lagði rútan af stað til San José.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/92