BMW 318i til sölu
Bíllinn minn seldist náttúrulega ekki núna um helgina eins og ég bjós við. Hann mun því fara beint í umboðssölu nú í vikunni.
Læt hér fylgja auglýsinguna eins og hún birtist í Fréttablaðinu nú um helgina, ef einhver skyldi hafa áhuga þá er aldrei að vita hvort hægt er að ná samningum við eigandann. Þetta er mjög vel með farinn bíll og í toppstandi. Radarvari og toppgrind fyrir skíði og 2 reiðhjól getur fylgt. Skráið ummæli hér með ykkar tölvupóstfangi og ég mun hafa samband.
BMW 318i 06/98 ekinn 96 þ. km. Álfelgur á nýl. sumardekkjum. Vetrardekk á álfelgum o.fl. fylgir. Nýskoðaður. Bíll frá umboði, reyklaus. Einn eigandi. Verð 1390 þús. Tilboð.




Ummæli
Bíllinn lítur mjög vel út á sportlegri mynd. Ég er aftur á móti að leita að fjölskylduvænni bíl. Helst skutulbíl('station') og ekki væri verra að hann væri 4x4 til að minnka líkur á að fjöldskyldan sitji föst ...
Gangi þér sem best að selja bmw-inn.
Skráð af: Ketill | 01.11.05 20:28