« Ferðaloggur | English blog »

Styttist í ferðina

Þá er ég kominn í frí og loksins hægt að setja allt á fullt í undirbúningnum. Það verður nóg að gera að pakka á næstu dögum og ég er að sjá fyrir endann á þessu sem betur fer. :)

Var að ganga endanlega frá myndaalbúminu úr færeyjaferðinni í myndablogginu. Ég ætla að reyna að fylla upp í tímabilið ágúst og september með 2-3 pistlum ef ég hef tíma næstu daga.

Alltaf gaman að heyra frá fólki og sjá að einhverjir eru að lesa þetta blogg. Ég vona að þetta verði í senn fræðandi og vekji áhuga hjá fólki fyrir ferðalögum og menningu. Ég er alla vega sjálfur mjög spenntur fyrir því hvað ég á eftir að upplifa.

Ég byrja á að læra spænsku á Kostaríka en eftir áramót ætla ég að leggja land undir fót og halda suður á bóginn. Margir staðir sem mig langar að heimsækja, en ég ætla að plana sem stutt fram í tímann í einu.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/61