« Bloggið inni / Weblog up | BMW 318i til sölu »

Allt að verða klárt

Ég á að fljúga út 3. nóvember og mun stoppa hjá frænda mínum í Boston, en verð kominn til San José í Kostaríka 6. nóvember. Ég byrja svo í spænskunáminu daginn eftir.

Var að fá upplýsingar um fjölskylduna sem ég bý hjá fram að áramótum. Það eru hjón með 12 ára gamla dóttur. Hann er hættur að vinna og hún er heimavinnandi. Maður er svo sem ekkert vanur að búa inn á bláókunnugu fólki, en það verður lærdómsríkt að fylgjast með lífi þessarar rómönsku fjölskyldu, sem vafalaust á eftir að kenna manni mikið.

Maður hefur bæði verið að takast á við spennu- og kvítarilfinningu en nú er spennan og tilhlökkunin búin að taka yfir.

Ef þið þekkið einhvern sem vantar góðan BMW 318i árgerð 98, kíkið þá í Fréttablaðið á morgun, laugardag. Ég á eftir að sjá á eftir honum.

Ummæli

#1

Er bíllinn góður?

#2

Að sjálfsögðu! Toppeintak og einstaklega vel með farinn brosandi Eins og eigandinn!

#3

Kannske soltið við aldur. Svona eins og ei... nei segi bara sona saklaus

#4

Það tíðkast víst í suður Ameríku að drekka froska !
Rauðeygði froskurinn er örygglega fínn í þeytarann.tungan lafandi

#5

Mikið rétt Ketill! Ég man ekki í hvaða tilgangi það er gert, en einhvers staðar finnst mér ég hafa heyrt að froskasjeik væri góður fyrir heilann! Altént er hann einnig mikilvægt hráefni skv. hinn rammíslensku bók Ástargaldrar, en erfitt getur reynst að finna þetta hráefni hér.

Skrá ummæli

(Ef þú hefur ekki sett inn ummæli hér áður, gæti verið að eigandi þessa vefs þurfi að samþykkja hana áður en hún birtist. Þangað til mun hún ekki birtast. Takk fyrir að bíða.)

svalur/svöl grenjandi vandræðaleg(ur) með fót í munni
leiður saklaus kyssandi hlæjandi
peningamunnur usss brosandi undrandi
tungan lafandi óákveðin(n) blikka öskra

TrackBack

TrackBack URL fyrir þessa síðu:
http://www.markuspolus.com/mt/mt-tb.cgi/64